mánudagur, ágúst 07, 2006

Í þetta skipti stal einhver kall lykilorðinu mínu og bloggaði einhverja árans vitleysu, baktal um fólkið mitt og flesta sem skipta mig einhverju máli og mátti ég eyða miklu púðri í að verja sjálfa mig þegar reiðir vandamenn helltu sér yfir mig. Hvers vegna dreymir mig bloggið mitt? Lendið þið hin í þessu?

Annars er lífið ósköp notalegt hérna um þessar mundir, veðrið er fyrirtak og félagsskapurinn líka, tengdó stjana við okkur og drengurinn nýtur þess að hafa leikfélaga. Það er hollt að flytja frá fjölskyldunni og finna að maður á allt þetta góða fólk að þegar maður hittir það aftur. Við fórum á ströndina í gær og nutum þess að gera ekkert nema sofa, éta og lesa. Þetta er sko lífið!

Annars fékk ég óvæntan glaðning frá skattinum og notaði hluta af honum til að panta flug fyrir mig og erfingjann heim til Íslands 23. ágúst. Við ætlum að stoppa í tíu daga, hitta ættingja og vini, kaupa seríós (því þessir fjórir sem tengdó komu með verða sko ekki lengi að klárast) og bara hafa það gott. Þetta verður síðasta Íslandsferðin mín á árinu þar sem styttist í að ég verði ófær í flug.

Vonandi fór helgin vel með ykkur.

Engin ummæli:

 
eXTReMe Tracker