Hæ, þetta er Ljúfa, hvernig hafiði það?
Ég hef það fínt!
Nei, það er svo sem ekkert sérstakt í fréttum, en hjá ykkur?
Ha, baðherbergið? Jú það er loksins eitthvað að gerast, kom pípari í dag og svona, lagði rör og svoleiðis.
Eiginmaðurinn? Hann kom frá Erlendis á sunnudaginn og við vorum ofsalega glöð að fá hann heim aftur, sonurinn sleppti ekki augunum af honum fyrstu tvo dagana og hann er enn að tala um hvað það sé gott að pabbi sé kominn.
Jú, það er gaman í vinnunni, fékk að skoða endurvinnslustöð fyrir málma um daginn, það var mjög skemmtilegt.
Nei, það gengur ekkert allt of vel með það.
Ókei, það var gaman að heyra í ykkur og takk sömuleiðis!
Bless.
miðvikudagur, mars 31, 2004
fimmtudagur, mars 25, 2004
Stundum finnst mér voða gott að búa á Íslandi, vitandi það að við erum nokkuð örugg fyrir skarkala heimsins og hinu illa sem er á ferli. Oftar er ég hins vegar óþyrmilega minnt á að illskan býr líka á Íslandi, eiginlega gerist þetta daglega. Það líður varla sá fréttatími sem ekki er minnst á barnaníðinga og fórnarlömb þeirra. Af hverju í andskotanum sleppa þessi helvíti alltaf svona vel? Í dag féll dómur yfir manni sem misnotaði stjúpdóttur sína í 12 ár. Hvaða refsingu fékk hann? Jú, skitin fimm og hálft ár og smánarlega lága sekt. Hann hélt barni í hryllilegum fangabúðum í tólf ár, ég get ekki ímyndað mér að fangelsi hérlendis séu jafn skelfileg og það sem stúlkan mátti þola. Það hefði að minnsta kosti átt að dæma manninn til jafnlangrar vistar og hann dæmdi varnarlaust stúlkubarn.
miðvikudagur, mars 24, 2004
mánudagur, mars 22, 2004
Í höfði mínu hljómar lag sem kom út á plötu árið 1984. Af því að ég hef ekkert sérstakt að segja, er ég að hugsa um að kanna hvort eitthvert ykkar, kæru lesendur, þekkið plötuna og hljómsveitina sem flutti. Ekki væri verra að fá nafnið á laginu. Sá/sú sem svarar rétt fær titilinn "Gáfnaljós vikunnar" auk þess sem sá sami/sú sama má bjóða mér í kaffi. Texti lagsins er svona:
Bo Bo Bee, Bo Bee,
Bo Bo-Bo Bee,
Bo Bee, Bo
I couldn't bear to be special,
I couldn't bear, couldn't bear.
I couldn't bear, right ?
So don't look at me and say, that I'm the very one,
Who makes the cornball things occur, the shiver of the fur.
Don't expect so much of me, I'm just an also-ran,
There's a mile between the way you see me and the way I am.
So don't stare at me that way, of course it gives me pride,
but I won't take on the risk, of letting down the sweet sweet side.
Did you mean to humble me ?
So you did it unsuspectingly !
Oh words are trains, for moving past what
Really has no name.
Bo bo bee, bo be, bo

Who makes the cornball things occur,
the shiver of the fur. . . . right?
Góða skemmtun.

fimmtudagur, mars 18, 2004
Það má eiginlega segja að með þessu bloggi sé ég að taka áskorun
Hann Magnús Ingvar Bjarnason sem í gærkveldi hlaut viðurnefnið "Undur Íslands" er sko alveg náskyldur mér! Þegar hann var lítill pjakkur þá kallaði hann mig alltaf sögufrænku því mér þótti svo gaman að segja honum alls konar sögur. Ég hef aldrei síðar hitt nokkurt barn sem hlustar af jafn miklum ákafa og hann gerði, hann beinlínis drakk í sig hvert orð sem hraut af vörum mínum. Sögurnar fjölluðu yfirleitt um strák sem hét Magnús og var hann gæddur undraverðum hæfileikum og því er mér skapi næst að álykta að það sé mér að þakka að Magnús fór að þróa með sér þennan undraverða hæfileika að halda á strauborði með andlitinu!
HÚRRA FYRIR UNDRI ÍSLANDS!!!
(húrra fyrir mér!)
Pezkall, var þetta í lagi?

miðvikudagur, mars 17, 2004
mánudagur, mars 15, 2004
Í gær gerðum við tilraun til að gefa öndunum á Læknum en þær syntu bara í burtu. Í dag gerðum við aðra tilraun en hættum við þegar við sáum að brauðbitarnir þekja yfirborð Lækjarins bakkanna á milli.
Sonur minn vaknaði eldhress í blíðunni í morgun en þar sem honum gekk eithvað illa að vekja mömmu gömlu rölti hann fram og vissi ég ekki meira fyrr en hann kom inn í herbergi íklæddur ninjabúningi, glamrandi á gítar og syngjandi eins og farandsöngvari. Í kvöld sofnaði hann svo í drekabúningi í sófanum. Í millitíðinni fór ég í foreldraviðtal í leikskólanum og fékk staðfestingu á því að ég á fyrirmyndarbarn. Þetta var góður dagur.

laugardagur, mars 13, 2004
Vá! Ég var að fatta að ég hef ekki bloggað um neitt nema baðherbergið mitt síðan í lok febrúar. Eru ekki allir orðnir leiðir á þessu? Sérstaklega þar sem ekkert hefur gerst! Svona festist maður í sínum eigin litla heimi og sér ekki nema rassgatið á sjálfum sér (reyndar eru það ýkjur, ég sé það yfirleitt ekki einu sinni sjálf). Ég lofa að hætta þessu fyrr en eitthvað gerist og meira að segja þá skal ég ekki segja of mikið.
Nú ætlum við snillingurinn að vera ein heima í tvær vikur og hafa það gott. Verst að geta ekki haldið endalaus matarboð (af augljósum ástæðum sem ég var að enda við að lofa að blogga ekki meira um) en ef einhverjir aðrir eru að halda endalaus matarboð þá erum við í miklu stuði um kvöldmatarleyti á degi hverjum. Ef einhver vil bjóða okkur í sturtu þá er það líka mjög vel þegið, ég nenni nefnilega ekki alltaf að fara í sund. Að sjálfsögðu þýðir lítið fyrir mig að mæta með soninn í sturtuklefa sundlaugar og setja punkt þar við, drengurinn heimtar sitt busl.
Áðan sendi nágrannakona mín mér tvær súkkulaðikökusneiðar og þær voru æði með léttmjólk.

Enn hefur ekki heyrst múkk í iðnaðarmönnunum sem voru ráðnir til að gera lýtaaðgerð á baðherberginu og ég er að verða pínu pirruð. Í gær leit reyndar út fyrir að við hefðum fundið staðgengla en sú sæla stóð ekki nema í u.þ.b. tvo tíma. Vesalings eiginmaður minn var ákaflega súr á svip og í sinni þegar hann færði mér þær fréttir að við snillingurinn sætum hugsanlega uppi iðnaðarmannalaus næstu tvær vikurnar. Af því að ég er svolítið góð (bara smá samt) þá lék ég Pollýönnuleik og lét eins og þetta væri allt í besta lagi.
Í morgun fór öll fjölskyldan á fætur á sérlega ókristilegum tíma og við ákváðum að skreppa á rúntinn. Leiðinn lá á Suðurnes og þegar við nálguðumst Leifsstöð ákvað ég að senda kallinn bara til útlanda í eins og tvær vikur. Á meðan ætla ég að sjá hvort það gerist kraftaverk á baðherberginu eða hvort ég þurfi að kaupa bókina "Handlagin húsmóðir" og bregða mér svo í hlutverk pípara.
Ef þið séuð með hattin þá komist þið kannski í stuð og biðjið ykkar guð að senda mér iðnaðarmenn. Amen.

miðvikudagur, mars 10, 2004
föstudagur, mars 05, 2004
fimmtudagur, mars 04, 2004
þriðjudagur, mars 02, 2004
Vælið mitt var toppað með glæsibrag í kommenti við síðustu færslu og já Gulla, þetta er alveg rétt hjá þér, við erum stálheppnar og ég hugsa að ég sé jafnvel heppnari en þú. Baðherbergið verður orðið glænýtt og fínt áður en langt um líður, ég á ágætis ryksugu og nóg af tuskum, ég er útsofin í dag og eiginmaðurinn (sem er jafnframt liðtækur í ryksugun) brá sér bara upp að Kárahnjúkum í nokkra daga. Þetta er bara ágætt allt saman og maður á ekki að vera að kvarta svona alltaf hreint, það eru flestir í mínu lífi við góða heilsu, ég er í skemmtilegu námi og ágætri vinnu og þar að auki á ég notalega íbúð og bíl sem virkar (þótt hann þarfnist sárnauðsynlega yfirhalningar). Skítt með það þó að ég sé skítblönk og nokkrum kílóum of þung, ég hef allt til alls og á þar að auki fullan frysti af mat. Og síðast en ekki síst er nánasta fjölskylda og vinir allt svo ljómandi gott fólk sem er tilbúið að leggja ótrúlega mikið á sig ef maður þarf á hjálp að halda.
Lífið er bara býsna gott!
Lífið er bara býsna gott!
mánudagur, mars 01, 2004
fimmtudagur, febrúar 26, 2004
Fyrir hálfum mánuði setti ég hér inn smá pistil um íbúðina mína og nefndi ég m.a. að mig langaði í nýtt baðherbergi. Ég átti hins vegar ekki von á því að það gerðist strax! Húsið okkar var byggt fyrir miðja síðustu öld og eru flestar lagnir eftir því, reyndar skiptum við um rör í eldhúsinu í ondúleringunni miklu áður en við fluttum inn en baðherbergið var bara málað og látið bíða betri tíma. Nú er tíminn runninn upp en hvort hann er góður veit ég ekki. Baðkarið hefur öðru hvoru stíflast síðustu árin en alltaf hefur tekist að losa stífluna. Nú er öldin önnur, þrátt fyrir gríðarlegt erfiði sat stíflan sem fastast og sagðist vera komin til að vera. Við höfum því brugðið á það ráð að henda helv... baðkarinu út og skipta um lagnir. Baðkarið fær svo aldrei að koma inn aftur því okkur finnst tími til kominn að smíða sæta innréttingu þarna inn og ætlum við aldrei í bað aftur. Bara sturtu. Hér verða mikil læti á næstunni og ef ykkur finnst við eitthvað skítug eða illa lyktandi þá verðiði bara að eiga það við ykkur sjálf! Blóðug fjárútlát munu einnig fara fram og eru öll framlög sérlega vel þegin.
miðvikudagur, febrúar 25, 2004
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
Best að ég segi ykkur hvað við höfðum fyrir stafni þessa merku helgi sem nú er nýliðin.
Á föstudagskvöld var ég ein heima og hvað gerist þegar kötturinn bregður sér af bæ? Jú, rétt hjá ykkur, mýsnar fara á kreik. Ég skundaði sem sé út á næstu vídeóleigu, fann mér hrollvekjur tvær og sá því fram á gott kvöld. Mér tókst að koma syninum snemma í bólið, slökkti ljósin og kveikti á "28 days later". Hún var ágæt og mér brá m.a.s. nokkrum sinnum. Um tíma var ég samt að spá í að slökkva á henni og vera ekki að gera sjálfri mér þetta en svo fannst mér að ef ég gerði það þá væri það eins og að viðurkenna að ég sé orðin of gömul fyrir þetta. Sénsinn! Ég er og verð 17!
Næsta mynd var unglingahrollurinn "jeepers creepers" og unglingurinn ég var í ágætu stuði þar til kom í ljós að ekki yrði útskýrt hverrar þjóðar eða tegundar ógnvaldurinn var. Ég þoli ekki svoleiðis! Öll skrýmsli eiga sér rætur í þjóðtrú og/eða munnmælum, þetta getur ekki verið nein undantekning. Ég held sem sé að ég neyðist til að horfa á framhaldið. Þess má geta að mig dreymdi fallega drauma eftir þetta.
Á laugardagskvöld var okkur boðið á Chicago og þó að sjóið sé flott þá er ég ekkert yfir mig hrifin. Bestur fannst mér Matti með fiðluna og banjóið og Eggert Þorleifs skreið í kjölfarið. Freyðivínið og sætindin í hléinu voru hins vegar alveg að gera sig.
Sunnudagurinn hófst á gleðilátum barnanna "okkar" tveggja, Eiginmaðurinn fékk fullt af heimagerðum afmæliskortum í afmælisgjöf og við sungum afmælissönginn yfir eggjaköku í hádeginu. Kakó og Rjómabollur í kaffinu og voru það einu bollurnar sem komu inn fyrir hússins dyr þetta árið. Ljúffeng folaldasteik að hætti Ljúfu í kvöldmat og dýrindis rauðvín með. Hvað síðar gerðist kemur ykkur ekki við.
Í gær hófst lausn að erfiðu máli sem lengi hefur legið á mér og í dag er ég öll léttari einhvern veginn (en mér dettur samt ekki í hug að stíga á vigtina). Baðherbergið mitt er reyndar að mestu ónothæft vegna stíflu í baðkari og vaski, lyktin af stíflueyðinum veldur því að mér súrnar um augu en samt get ég ekki annað en verið kát (hvað með það þó ég þurfi að halda í mér?) þegar sólin skín og styttist í páska!

mánudagur, febrúar 23, 2004
Í dag lagði ég þrjá bloggara til viðbótar í hlekki.
Leifur er frændi minn sem er gæddur miklum hæfileikum í mannlegum samskiptum, a.m.k. í samskiptum við mig. Á ótrúlegan hátt hefur honum oft tekist að fá mig til að brosa þegar ég hef þurft á því að halda og í dag tókst honum það með bloggsíðuna að vopni. Takk fyrir það Leifur, ég þurfti svo sannarlega á því að halda.
Gneistinn er bróðir Kisumömmunnar og þ.a.l. frændi frænku minnar. Hann trúir ekki á guð og er að læra bókasafnsfræði.
Eygló, sambýliskona Gneistans, er hugljúf og einlæg en mætti blogga oftar.

fimmtudagur, febrúar 19, 2004
Lengi hef ég lúrt á fjársjóði en nú er kominn tími til að deila honum með umheiminum. Mér finnst gaman að skoða blogg annarra og hef gert það nokkuð lengi, en ekki nennt að hlekkja á þessi blogg fyrr en nú og geta áhugasamir skoðað hlekkina hér til hliðar. Ég held að það sé rétt að ég segi ykkur aðeins frá hverjum og einum.
Leibbalingurinn er sætasti gæi í heimi og aðdáandi Villa Naglbíts.
Guðfaðirinn er vonandi tilvonandi eiginmaður vinkonu minnar.
Dr. Gunna þarf vart að kynna.
Heimsborgarinn gefur skemmtilega innsýn í líf einhleypra, samkynhneigðra háskólanema og vann þar að auki einu sinni með mér.
Kýrhausinn segir frá lífi þjóðfræðings að loknu námi og er á góðri leið með að verða framhaldsskólakennari.
Heilaga beljan á sérvitran kött sem heitir Fídel og hefur hann haldið mörg þjóðfræðipartý.
Illugaskotta er draugur sem býr í turni með rottu.
Blamla gekk einu sinni með mér yfir Kjöl (næstum því allan).
Bedda er fyndin stelpa sem vinnur á leikskóla og ætlar bráðum að giftast manni sem var einu sinni í kjól og með fjólubláar krullur. Hún er með heitan pott heima hjá sér en ég hef aldrei komið í hann þar sem ég þekki Beddu ekki neitt.
Blindgata skrifaði ævisögu Ruthar Reginalds og liggur ekki á skoðunum sínum.
Beggi er afturbata hjartasjúklingur og getraunabloggari.
Aðkomumaðurinn er fyrrverandi blaðamaður og núverandi kennari. Hann elti ástina í sjávarþorp út á land og honum er kennt um allt sem aflaga fer í plássinu (eiginlega ætti ástin hans að vera hér líka en hún fær ekki aðgang fyrr en hún byrjar að blogga aftur).
Matarást skrifar um mat og ég slefa oft yfir blogginu hennar.
Sísí er í Brúðarbandinu og er nýbúin að kaupa sér íbúð.
Nornasveimurinn er einfaldlega langbesta blogg ever...
Uppgjafarblaðamaðurinn hefur skoðanir á öllu og kann krassandi sögur.
Lúní á marga Vanilla sky boli og býður upp á alls kyns fegrunarráð.
Húsmóðirin vill ekki búa í svona innlits útlits íbúð.
Pezkallinn er maður frænku minnar og er núna í sumarfríi.
Kisukonan er frænka frænku minnar og hún kann dönsku betur en margir.
Það eru reyndar fleiri sem mættu vera hérna en þeir fá ekki inngöngu í fjársjóðskistuna fyrr en síðurnar þeirra hætta að fela sig.
Njótið vel!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)