föstudagur, desember 17, 2004

Mér er hálf flökurt eftir að hafa hlustað á nýja útgáfu af Last Christmas á Bylgjunni.

Reyndar verður mér oft flökurt af því að hlusta á Bylgjuna.

10 ummæli:

Erna Erlingsdóttir sagði...

Ný útgáfa af Last Christmas?!!! Er fólki ekkert heilagt?

Ljúfa sagði...

Greinilega ekki!

Nafnlaus sagði...

Þá er bara að skipta yfir í rás 2.

Ljúfa sagði...

Ég heyrði ekki hver ber ábyrgðina en ég vona að ég heyri þetta aldrei aftur. Ég vona líka að ég eigi aldrei, aldrei eftir að heyra Scooter syngja eða spila framar.

Hildigunnur sagði...

það er ekki að ástæðulausu að viðkomandi útvarpsstöð er alltaf kölluð Velgjan hér á bæ...

Nafnlaus sagði...

Sá sem ber ábyrgð á enurútgáfunni er sá hinn sami og ber ábyrgð á frumútgáfunni, Bob Geldof.

Ljúfa sagði...

Við erum að tala um Wham/George Michael lagið Last christmas, ekki Do they know it's christmas.

Nafnlaus sagði...

Mín mistök. Las vitlaust, Do they no it´s christmas er að bögga mig. Hef sem betur fer ekki heyrt nýja útgáfu af Last Christmas!

Nafnlaus sagði...

Alverst er þó íslenska útgáfan af Last Christmas

Ljúfa sagði...

Ég get ekki annað en verið sammála því!

 
eXTReMe Tracker