föstudagur, ágúst 25, 2006

Gvöð hvað ég vorkenni unga manninum sem situr í brasilísku fangelsi fyrir tilraun til að smygla tveimur kílóum af kókaíni. Sorrý Stína!

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Takk fyrir kveðjurnar.
Ég er laus úr leðrinu svo að ég ætti að geta látið vita af mér núna.

Tengdó fóru síðasta fimmtudag og komust klakklaust í gegnum öryggisgæsluna á Stansted, vona bara að það gangi jafn vel hjá okkur á morgun. Annars var ósköp notalegt að hafa þau hér, það var stjanað við mig á allan hugsanlegan máta og erfinginn hafði einhvern skemmtilegri en mömmu gömlu til að leika sér við.

Við snillingurinn erum sumsé á leið heim annað kvöld og stoppum í tíu daga, dagskráin er að þéttast nokkuð svo að ef einhver hefur sérstakar óskir þá er eins gott að taka það fram sem fyrst.

Við fjölskyldan vorum að koma úr ómskoðun þar sem við sáum spriklandi sponna, allt lítur vel út og áætlaður komudagur er í kringum 6. janúar, systir mín hefur reyndar lagt fram þá ósk að ég haldi í mér til 11. svo hún fái litla Dísu í afmælisgjöf. Haddý mín, það er borin von, engin Dísa á leiðinni í þetta skiptið.

Nú þarf ég að þvo þvott, laga aðeins til og setja niður í töskur (ætla samt að fara með þær hálftómar svo ég hafi pláss fyrir seríósið).

Sí jú on ðe kleik!

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Það eru rétt rúm tíu ár síðan ég kynntist eiginmanninum.

Í dag eru þrjú ár síðan við giftum okkur.

Leður!

laugardagur, ágúst 12, 2006

Til hamingju með daginn hinsegin fólk!

Myndin var tekin í göngunni fyrir þremur árum, þá varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fá að sitja í vagninum hjá Akureyringunum, þetta var ekki bara ótrúlega gaman heldur á ég hommum og lesbíum líf mitt að launa!

Ég verð í anda á hliðarlínunni og veifa ykkur af öllu afli.

mánudagur, ágúst 07, 2006

Í þetta skipti stal einhver kall lykilorðinu mínu og bloggaði einhverja árans vitleysu, baktal um fólkið mitt og flesta sem skipta mig einhverju máli og mátti ég eyða miklu púðri í að verja sjálfa mig þegar reiðir vandamenn helltu sér yfir mig. Hvers vegna dreymir mig bloggið mitt? Lendið þið hin í þessu?

Annars er lífið ósköp notalegt hérna um þessar mundir, veðrið er fyrirtak og félagsskapurinn líka, tengdó stjana við okkur og drengurinn nýtur þess að hafa leikfélaga. Það er hollt að flytja frá fjölskyldunni og finna að maður á allt þetta góða fólk að þegar maður hittir það aftur. Við fórum á ströndina í gær og nutum þess að gera ekkert nema sofa, éta og lesa. Þetta er sko lífið!

Annars fékk ég óvæntan glaðning frá skattinum og notaði hluta af honum til að panta flug fyrir mig og erfingjann heim til Íslands 23. ágúst. Við ætlum að stoppa í tíu daga, hitta ættingja og vini, kaupa seríós (því þessir fjórir sem tengdó komu með verða sko ekki lengi að klárast) og bara hafa það gott. Þetta verður síðasta Íslandsferðin mín á árinu þar sem styttist í að ég verði ófær í flug.

Vonandi fór helgin vel með ykkur.

föstudagur, ágúst 04, 2006

Mig dreymdi að ég hefði bloggað óheyrilega mikið, um hvað man ég ekki.

þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Kríli hæ, kríli hó!

Sónarinn gekk vel og ekki er annað að sjá en að Krílið skemmti sér hið besta við að fikta í tásunum og svona. Við erum lukkunnar pamfílar því við fáum að sjá Kríli aftur eftir þrjár vikur þar sem við vorum full snemma á ferðinni núna. Bara gaman.
Þetta eru Múmínálfarnir sem ég horfði á og lærði að elska sem barn, mér hlýnaði um hjartarætur þegar ég sá þessa mynd inni á vef rúv og mér þykir hundleiðinlegt að missa af þessum þætti í kvöld.
 
eXTReMe Tracker