þriðjudagur, janúar 10, 2012

Kvöldmatur

Alsæl dóttir mín sagðist hafa fengið rjóma í kvöldmatinn í gær. Ég hló og trúði henni mátulega enda veit ég að eiginmaðurinn er fullfær um að næra börnin þótt ég bregði mér af bæ. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að kvöldmáltíðin samanstóð af soðnu pasta með tómatsósu og súkkulaðibúðingi með rjóma. Þetta þótti víst hin besta veisla.

föstudagur, janúar 06, 2012

Fyrir fimm árum...


"Klukkan 13:15 fæddist drengur með rauðleitt hár, hann er 51 cm og 3740 gr og hefur hlotið nafnið Emil. Þetta gekk ljómandi vel en ég skal segja ykkur betur frá síðar, nú má ég til með að leggja mig þar sem ég hef ekki sofið í rúman sólarhring.

Sjáumst."

Meðfylgjandi mynd var tekin á aðfangadagskvöld, af einhverjum ástæðum náðist engin mynd af gleraugunum um jól eða áramót. Sem er spes þar sem hann vill helst sofna með þau á nefinu.

fimmtudagur, janúar 05, 2012

Fýlupúkinn

Íslenskt samfélag er óstjórnlega leiðinlegt þessi misserin. Það er magnað (eða hitt þó) að fylgjast með fréttamiðlum og athugasemdadálkum þeirra því fólk hikar ekki við að segja það sem því sýnist um hvern sem er, satt eða logið og helst ekkert fallegt. Miðað við þetta lítur út fyrir að það séu eintómir eiginhagsmunaseggir, fávitar og karlrembur (af báðum kynjum) sem byggja landið. Venjulegt fólk missir pínulítið vit við hvern lestur og verður á endanum samdauna. Held að okkur sé ekki við bjargandi. Ógeðslega leiðinlegt Ísland. Djöfull nenni ég þessu ekki.

þriðjudagur, október 11, 2011

Vá!

Næstum því ár síðan síðast. Þetta er nú eiginlega bara tilraun til að sjá hvort ég kunni ennþá lykilorðið.

Ef einhver villist hér inn og hefur áhuga þá búum við enn í Þorpi Satans, börnin eru orðin þrjú og leikfélagið er ennþá mitt helsta áhugamál.
Núna eru kallar að múra húsið mitt að utan, þeir ætluðu að koma 20. ágúst en eru að byrja í dag. Gaman aððessu.
Ég ætla að hendast í sturtu.

mánudagur, nóvember 08, 2010

Einu sinni bloggaði ég daglega

Nú er liðið rúmlega ár síðan síðast. Ég hef samt ekki í mér að loka síðunni og hætta formlega. Svona er ég nú íhaldsöm.

laugardagur, ágúst 29, 2009

Blogg

Mátti til með að ganga úr skugga um að ég myndi enn lykilorðið mitt. Merkilegt nokk hefur meðgönguþokan ekki enn étið það úr hausnum á mér.

þriðjudagur, apríl 14, 2009

Vindhögg

Ég datt inn á bloggsíðu Ástþórs Magnússonar. Hvers vegna í ósköpunum eyðir hann öllu þessu púðri í að ráðast á Borgarahreyfinguna en víkur varla orði að þeim flokkum sem hér hafa verið við völd? Að vísu las ég ekki nema þrjár færslur en þar er ekki minnst á skandala fyrri stjórna. Merkilegur andskoti.

þriðjudagur, febrúar 10, 2009

Ég skil ekki alveg

Af hverjur er Ólafur að tjá sig um málefni einstakra banka? Er hann það vel tengdur inn í bankana að hann geti talað um þeirra mál?

Þurfum við ekki nýjan forseta?

mánudagur, febrúar 09, 2009

Til að fyrirbyggja misskilning

vil ég koma því á framfæri að ég óska þess að allir lifi vel og lengi.

sunnudagur, febrúar 08, 2009

Staðsetning

Það er til staður í helvíti fyrir Davíð Oddsson.

miðvikudagur, febrúar 04, 2009

Gleði

Held með nýju ríkisstjórninni.

Rock on.

laugardagur, janúar 31, 2009

Áfram Framsókn?

Eftir nýjasta útspilið er það alveg á hreinu að framsóknarflokkurinn fær ekki mitt atkvæði í komandi kosningum.

mánudagur, janúar 26, 2009

Feelings...

Tilfinningarnar eru enn blendnari í dag en í gær.

Og mig langar enn að vita þetta með lagið.

Í frjálsu falli

Og hvað svo?

Veit engin/n hvað lagið heitir?

sunnudagur, janúar 25, 2009

Interesting times

Við lifum á áhugaverðum tímum, allt of áhugaverðum.
Ég hef blendnar tilfinningar gagnvart viðburðum dagsins og get ekki gert upp við mig hvaða hvatir lágu að baki.

Nennir svo einhver að segja mér hvaða lag er spilað undir auglýsingunni um nýja þáttinn hans Jónsa.

laugardagur, janúar 24, 2009

Hörður Torfa og afleiðingar orða II

Eftir að hafa hlustað á viðtalið við Hörð er ég algjörlega sannfærð. Það hefur tekist að snúa fullkomlega út úr orðum hans.

Sjá hér: http://mbl.is/media/96/1196.wav

Hörður Torfa og afleiðingar orða

Ég skil vissulega hvað hann var að fara með orðum sínum í gær þótt ég hefði orðað það öðruvísi. Eða jafnvel sleppt því að orða það.

Mér finnst hins vegar frámunalega heimskulegt að láta þessi orð fæla sig frá því að mótmæla. Davíð og hans pótintátar sitja enn sem fastast og sömu aularnir eru í FME og leyfðu að íslenska þjóðin yrði sett á hausinn. Geir og Ingibjörg leiða enn ríkisstjórnina þrátt fyrir veikindi. Veik manneskja með fulla starfssorku hefur eflaust gott af því að vinna en þegar starfið skiptir sköpum fyrir heila þjóð og því fylgir að auki gríðarlegt álag, þá á fólk að hleypa öðrum að.

Litli krumminn minn er lasinn, annars væri ég á leið í bæinn núna. Í staðinn sit ég við tölvuna, íklædd appelsínugulri peysu.

Klæðist uppáhalds litnum okkar allra og drífið ykkur niður á Austurvöll.

fimmtudagur, janúar 22, 2009

Nýr litur í tilefni dagsins

Ég er stolt af mótmælendum í dag, kakó og ættjarðarsöngvar er málið.

miðvikudagur, desember 31, 2008

Tímabærar kveðjur

Gleðileg jól og gæfuríkt ár!
Sprengjum af okkur rassgatið og dönsum inn í nýja árið með von í hjarta.

Kveðja frá pakkinu á Heinabergi 19.

sunnudagur, desember 07, 2008

Enga fýlu!

Óþarfi að láta fúlar færslur standa efst of lengi.

Pestin er á undanhaldi þökk sé Alexander Fleming og Howard Walter Florey. Nú eru bara endalaus skemmtilegheit í gangi, jólatiltekt, skreytingar, pælingar og undirbúningur fyrir nýtt starf.

Stanslaus gleði!
 
eXTReMe Tracker