Jólasveinninn minn
káti karlinn minn...
Oj bara, ég er komin í jólaskap. Því var eiginlega troðið upp á mig því að hið árlega saumójólaföndur er á morgun og að sjálfsögðu þurfti ég að velta mér dáltið upp úr jólunum í tilefni af því.
Ég gerði mér ferð í borgina til að fjárfesta í föndurefni. Skemmst er frá því að segja að ég fékk ekkert #%$="%$ efni í frægum föndurbúðum og þykir mér það hreinasta hneyksli. Ég snéri aftur í heimabæ minn og rakst inn í þá ágætu verslun sem Bókabúð Böðvars er. Ég fékk þarna allt sem ég hafði verið að leita að og í þokkabót var allt efni miklu ódýrara. Þetta var líka svona þegar ég var að föndra fyrir brúðkaupið. Ég læt þetta mér að kenningu verða og fer aldrei aftur út fyrir bæjarmörkin (nema til að fara til Drífu á morgun).
Þið eruð obboslega rík og fræg!
föstudagur, október 31, 2003
fimmtudagur, október 30, 2003
Það eru að spinnast heitar blogg umræður um Leoncie sem var eitt sinn indversk prinsessa en er nú bara Icy Spicy Leoncie. Ástæðan fyrir þessu öllu er nýútkomin plata hennar sem inniheldur meðal annars hið stórkostlega Kópavogslag. Það eru allir með það á síðunum sínum þannig að ég vísa ykkur bara á eina slíka. Þetta lag er algjör snilld, ég var að heyra það í annað skipti í dag og ég get bara ekki annað en brosað og dillað mér við það. Mér þykir verst að hafa misst af ískryddinu í morgunsjónvarpinu, ég vona að það verði endursýnt. Miðað við sumar lýsingar á þessu má ég kannski kallast lánsöm að hafa misst af þessu en lagið er engu að síður stórfenglegt og HANA NÚ!
miðvikudagur, október 29, 2003
Jæja, þetta er ljótt maður/kona! Ég er orðinn letibloggari og það er komið frost. Reyndar er frost fínt, kannski kemur þá nægur snjór til að skíðabrekkurnar verði þolanlegar (dream on).
Síðustu dagar hafa verið tiltölulega rólegir. Ritgerðasmíð. Reyndar tók betri helmingurinn sig til og bókaði ferð til Köben um þarnæstu helgi. Dáltið gaman.
Ég þoli ekki þetta yo dæmi hérna fyrir neðan og er að hugsa um að taka það út. Kvartanir verða endursendar.
Hér finniði fyrirtaks tímasóun og hana megiði stunda þar til ég blogga næst.
Mér þykir bara býsna vænt um ykkur.
Góða nótt

laugardagur, október 25, 2003
YO yo yo! Heví stuð í vísindaferð í gær. Árbæjarsafn rúlar!
Nei, ég tala ekki svona í alvörunni, það var samt mjög gaman. Dagurinn í dag var ekki síður skemmtilegur, ég fór í langa gönguferð með Leibbalingnum og við komum við á einum stað og sníktum kaffi.
Það á að setja það í lög að allir eigi að ganga um Hellisgerði í haustlitunum, fegurðin er næstum óbærileg. Undir steinsteyptum vegg sá ég blátt sumarblóm í blóma. Ég legg til að þið gerið ykkur greiða og farið og leitið blómið uppi. Það er samt alveg bannað að slíta það upp!

fimmtudagur, október 23, 2003
miðvikudagur, október 22, 2003
Ég lenti í hrakningum síðasta laugardag. Þannig er mál með vexti að ég fór í flugferð eins og áður hefur komið fram. Umhverfis höfuðborgina er ógrynni sveitavega sem enginn veit hvert liggja enda liggja þeir til allra átta. Við flugum yfir einn slíkan og sáum 4 bíla mætast og stöðva á miðjum veginum (2 og 2 saman, úr sitt hvorri áttinni >><<). Út úr fremri bílunum (>><<) stigu rumungar miklir, íklæddir joggingbuxum og ermalausum bolum (það var skítakuldi og rigningarúðii). Úr aftari bílunum (>><<) stigu svo tveir menn, annar klæddur Armani jakkafötum en hinn var í Calvin Klein gallabuxum og Fruit of the Loom háskólabol. Okkur dauðbrá þegar við sáum þessa merkismenn skiptast á bögglum (og þá er ég sko ekki að tala um neina jólapakka) en þrátt fyrir skjálfta náði ég myndum af þessari athöfn. Okkur brá enn meira þegar við sáum að þeir höfðu orðið okkar varir. Beljakarnir þrifu báðir skotvopn úr buxnastengjunum (eða g-strengjunum, hver veit?)
og hófu skothríð sem okkur tókst með naumindum að forðast. Allir krimmarnir (þegar hér var komið sögu var okkur orðið ljóst að það hlytu þeir að vera) stukku upp í bíla sína og gerðu sig líklega til að elta okkur á jörðu niðri. Ég náði að mynda númeraplötur allra bílanna áður en við stungum þá af (bílar þurfa nefnilega vegi en flugvélar ekki). Eftir lendingu á Sléttunni hringdum við í lögguna og sögðum okkar farir ekki sléttar. Við vorum boðuð í skýrslutöku og að henni lokinni fengum við lögregluvernd þar sem mafíósarnir höfðu eflaust séð einkennisstafi flugvélarinnar. Sennilega hafa glæponarnir átt í vandræðum með að finna okkur því það var ekki fyrr en í nótt að aftur dró til tíðinda. ég vaknaði við að kötturinn fór að mjálma og hegða sér mjög undarlega. Ég hélt að hún væri eitthvað veik og fór fram úr til að gá að henni en þegar ég gekk framhjá svefnherbergisglugganum varð ég vör við hreyfingu í garðinum. ég gægðist varlega út og sá hettuklæddan jaka vera að læðast upp að húsinu. Ég leit á löggubílinn og sá að löggurnar sem áttu að gæta okkar voru sofandi (seinna kom í ljós að svefnlyfi hafði verið laumað í kleinuhringina þeirra). Ég stökk í símann og hringdi í neyðarlínuna en fékk ekkert svar (seinna kom í ljós að nafnlaus aðili hafði sent þangað kassa með kleinuhringjum, hvort það er samhengi þarna á milli, veit ég ekki), þannig að ég ákvað að taka til minna ráða (þau voru soltið dýr) og náði mér í kveikjara og hárspreysbrúsa. Það leið ekki á löngu þar til að ég heyrði að rjálað var læsinguna á útidyrunum og ég beið því reiðubúin með vopn mín og verjur þar til ég sá hurðarhúninn snúast og dyrnar opnast. Durgurinn gæðist laumulega inn en hann átti sko ekki von á mér og eldvörpunni minni. Þegar hann hafði fengið að kenna á henni, hrökklaðist hann argandi út í snjóskafl og lá þar veinandi nokkra stund. Hávaðinn vakti hálfa götuna og eftir öskamma stund voru nágrannar mínir komnir út, margir hverjir vopnaðir, og átti dólgurinn sér nú ekki undakomu von. Hraustir menn vöktu löggurnar sem tóku illmennið höndum og óku svo svefndrukknar á braut. Í morgun hringdi svo aðallöggan og sagði mér að mannfjandinn hefði sagt til allra félaga sinna og að þeir væru nú allir komnir bak við lás og slá þar sem þeir myndu hírast til eilífðarnóns enda afkastamestu dóp- og pulsusalar landsins. Ég átti semsagt þátt í því að uppræta Mafíu Íslands.

þriðjudagur, október 21, 2003
mánudagur, október 20, 2003
Langar ykkur ekki að skoða vefsíðu dagsins? Kíkið þá hér. Þarna versla allir vondu kallarnir í James Bond og Batman.
Þegar ég fór að sækja linginn á leikskólann mætti mér kona sem sagði:
"Heitir þú ekki Árný?"
Ég undraðist mjög þar sem ég kannaðist ekkert við hana og hún hefur sko örugglega séð það á mér því að hún flýtti sér að kynna sig. Hún heitir semsé Hulda og sagðist hafa kennt mér íþróttir í fyrsta bekk í MA fyrir LÖNGU SÍÐAN! Ég sem er nýútskrifuð úr menntaskóla! Hún var líka með einn bekk í umsjón. Ég man ekkert eftir henni og skil ekki hvernig í ósköpunum hún man eftir mér þar sem ég mætti nánast ekkert í íþróttir þennan vetur vegna slæmsku í ökkla og gifs á fæti og þurfti að skrifa ritgerð til að ná áfanganum. Hún sagðist hafa kveikt um leið og hún sá mig því að ég hefði sko ekkert breyst síðan í fyrsta bekk í menntó! Komm on, ég var sextán, það eru þrettán ár síðan þá! Á ég að taka þessu sem gullhömrum eða...
Mér þætti ógurlega gaman að heyra frá ykkur lesendur góðir, bæði um það hvort þetta voru eðalmálmhamrar og eins ef þið eigið í sarpi ykkar reynslusögur af áður nefndri Huldukonu eða sögusagnir.
Ástarkveðjur.

laugardagur, október 18, 2003
Ég fór í fyrstu fis flugferðina í dag og það var sko æði. Ég tók myndir sem koma kannski einhvern tíma inn á Sléttusíðuna. Ég flaug meira að segja sjálf og þyki mikið efni í flugmannaheiminum. Við flugum yfir Vatnsleysuströndina og sáum milljón eyðibýli og enn fleiri sóðabýli. Það er nefnilega með ólíkindum hvað er mikið drasl í kringum flest húsin þarna. Þetta er algjör skandall því landslagið er virkilega fallegt. Það þyrfti að halda eina góða áramótabrennun þarna, hún yrði stór því brennið er engan vegin af skornum skammti. Við sáum líka hraunið og ég er ekki frá því að ég hafi séð glitta í Geirfinn (eða var þetta kannski bara Leirfinnur?).
Dagurinn hætti ekki að vera skemmtilegur þegar flugferðinni lauk því við mæðginin buðum okkur í mat á Langó. Mamma bað mig að koma við í búð fyrst og hvað haldiði að ég hafi fundið í búðinni? Þið getið svarað þessu á sjátátinu mínu og ég skal gefa ykkur vísbendingu: ég var ótrúlega glöð og keypti mikið af því.
Góða nótt.

Nýja kaffikannan hefur ekki enn verið tekin upp úr kassanum en hinsvegar er aldeilis búið að nota "gömlu" espresso könnuna og nýju mjólkurþeytara græjuna í dag.
Það gerðist annars ekkert markvert í dag en ég sá hinsvegar sniðuga síðu í dag og er hún slóð dagsins.

fimmtudagur, október 16, 2003
Ég er búin að vera svokallaður "aumingjabloggari" í tvo daga (eða þarf kannski lengri tíma til að öðlast þann titil?).
Ég á líka nýja Braun kaffikönnu, ligga ligga lá lá! Það hefur ekki verið til slíkt tæki á þessu heimili í meira en mánuð. Að auki keypti ég lítinn mjólkurpott og sprota til að gera svona froðumjólk (ef einhver veit hvað græjan heitir þá vil ég gjarnan fá að vita það líka). Ég er að verða tækjaóð, mig langaði mest í svona espresso kaffivél en betri helmingurinn var ekki alveg á þeim buxunum, honum fannst ómögulegt að geta ekki hellt uppá fyrir alla gestina sem eru alltaf hér. Jæja, þá verð ég bara að nota "gömlu" espressókönnuna (sem við fengum í brúðkaupsgjöf í sumar) ó, vell. Mmmm, mig er farið að langa verulega í nammigott kaffi.
Betri helmingurinn splæsti í dönskunámskeið á spólum í dag og situr nú með nýja vasadiskóið sitt og æfir sig í að segja:
"Oppe på taget sidder en mand og læser avis"
með smá frönskum hreim.
Ekki spyrja mig um tilganginn með þessu því að ég mun ekki segja ykkur neitt.
Stundum upplifir maður svona "It´s raining man! Halelujah!" fíling en nú er ég að upplifa svona "It´s raining pregnant women! Halelujah!" Á tveimur dögum hitti ég fullt af konum sem eru með börn í bumbu. Kvað svo rammt að þessum óléttum að ég fór og keypti mér þungunarpróf. Segi ekki hver niðurstaðan er.
Ég fór á samkomu í dag og sá alvöru bókmenntafræðinga. Ég hef semsagt fengið svar við spurningunni sem könnunin byggði . Það er kominn tími til að henda henni út, kannski nenni ég að setja nýja inn. Niðurstaðan er sú að 1 sagði já og hafði séð svoleiðis, 1 vissi það ekki, 1 sagði nei og 4 sögðu döhh! Þetta þýðir að 7 manns tóku þátt og þakka ég þessa frábæru þátttöku.
Nú get ég loksins sagt skilið við áráttu mína gagnvart bókmenntafræðingum.

mánudagur, október 13, 2003
sunnudagur, október 12, 2003
Ég hef ekki komist til botns í saltlakkrísreimamálinu en ef þið rekist á svona góðgæti í einhverri afdala sjoppu þá yrði ég ykkur ævinlega þakklát ef þið keyptuð upp lagerinn þeirra og færðuð mér svo ásamt reikningnum.
Hafiði tekið eftir því að það er í tísku að vera með svona topp 100 lista á blogginu? Minn er svona
1. Mér finnst gaman að lesa
2. Ég er frjáls (tralalalala)
3. Mér finnst gott að borða saltlakkrís og súkkulaði
4. Ég hef aldrei átt páfagauk
5. Ég horfi oft á Leiðarljós
6. Ég hef aldrei smakkað sushi
7. Mér er ekki illa við bókmenntafræðinga.
8. Ég á vonda gönguskó
9. Ég er húsmæðraskólagengin
10. Mér finnst ekkert vit í að vera með topp 100 lista sem enginn nennir að lesa og þess vegna verður þetta bara topp 10 listi. Ef þið viljið vita eitthvað meira um mig þá getiði bara sent mér tölvupóst á arny@that.is.

laugardagur, október 11, 2003
föstudagur, október 10, 2003
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)